utsolur.is · Vörur á lækkuðu verði · uppfært oft á dag
Tilboð í dag
Hér finnurðu tilboð dagsins frá íslenskum netverslunum. Við lesum verðin úr verðgögnum verslananna nokkrum sinnum á dag. Merkið „Staðfest“ þýðir að varan er ódýrari en hún var síðustu 30 dagana áður en verðið lækkaði.
Spurt og svarað um tilboð
Hvar finn ég tilboð í dag?
Hér á utsolur.is. Á þessari síðu eru vörur á lækkuðu verði hjá íslenskum netverslunum, raðaðar eftir mesta afslætti. Við lesum verðin úr verðgögnum verslananna nokkrum sinnum á dag, svo listinn sýnir það sem er í gangi núna. Gildandi verð og skilmálar eru alltaf hjá versluninni sjálfri.
Hvar sé ég tilboð vikunnar?
Raðaðu eftir „Nýjustu tilboðin“ til að sjá það sem bættist við síðustu daga. Ný tilboð birtast um leið og við lesum verðin og detta út þegar þeim lýkur. Hvert tilboð gildir eftir skilmálum verslunarinnar; sum standa skemur en viku, önnur lengur. Matvöruverslanir eru ekki með.
Hver er munurinn á tilboði og útsölu?
Tilboð er sérstakt verð á einni vöru eða fleiri, oft í takmarkaðan tíma. Útsala er afmarkað tímabil þar sem verslun lækkar verð á stórum hluta úrvalsins. Á utsolur.is notum við orð verslunarinnar: merkið „Útsala“ fær aðeins verslun sem kallar það sjálf útsölu, aðrar verðlækkanir köllum við tilboð.
Eru tilboðin staðfest?
Vara með merkinu „Staðfest“ er ódýrari en lægsta verð hennar síðustu 30 dagana áður en verðið lækkaði. Það byggir á verðsögu vörunnar, ekki bara á „áður“-verðinu sem verslunin gefur upp. Önnur tilboð birtast án merkisins, og hnappurinn „Aðeins staðfest“ sýnir aðeins staðfestu tilboðin.
Hvernig fæ ég að vita af nýjum tilboðum?
Kveiktu á Vaktinni. Vöruvakt sendir þér póst þegar ný tilboð birtast á vörutegund sem þú velur, þvert á allar verslanir, og verslunarvakt sendir einn póst þegar útsala eða tilboð byrjar hjá verslun sem þú vaktar. Vaktin er ókeypis og þú afskráir þig með einum smelli.

















