Persónuverndarstefna
Síðast uppfært 21. október 2026
Í stuttu máli: Þú getur notað utsolur.is án þess að skrá þig inn, og við setjum engar vafrakökur í vafrann þinn nema þú skráir þig inn. Þess vegna er enginn vafrakökuborði hér.
Við teljum heimsóknir sjálf og skráum hvorki nafn, netfang né IP-tölu með þeim. Við notum hvorki Google Analytics né auglýsinganet og seljum aldrei upplýsingar um þig.
1. Hver ber ábyrgð
Melda software ehf., kt. 551225-0110, Ásholti 28, 105 Reykjavík, skráð í fyrirtækjaskrá Skattsins, rekur utsolur.is og ber ábyrgð á vinnslunni sem hér er lýst (ábyrgðaraðili). Spurningar og beiðnir um persónuvernd sendirðu á utsolur@utsolur.is.
Stefnan byggir á lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og almennu persónuverndarreglugerðinni (ESB) 2016/679.
2. Hvað við vinnum með og hvers vegna
Heimsóknir á vefinn (allir gestir)
- Hvað
- Hvaða síður eru opnaðar og hvað er smellt á, t.d. vara eða verslun. Hvaðan heimsóknin kom (t.d. google.com), land og gerð tækis, vafra og stýrikerfis, án útgáfunúmera. Landið lesum við úr IP-tölunni en geymum ekki IP-töluna sjálfa með þessum gögnum.
- Án vafrakaka
- Til að telja hve margir koma á dag notum við tætigildi (hash) sem er reiknað úr IP-tölu og vafra ásamt leynilykli og degi heimsóknarinnar, svo það breytist á hverjum sólarhring. Ekkert er geymt í tækinu þínu og við skráum hvorki nafn, netfang né IP-tölu með heimsóknunum.
- Tilgangur
- Að sjá hvað nýtist og hvað ekki, verja vefinn gegn misnotkun og sýna verslunum og auglýsendum samanlagðar tölur, t.d. „vörurnar þínar sáust 1.200 sinnum“.
- Grundvöllur
- Lögmætir hagsmunir okkar af því að reka og bæta vefinn (f-liður 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar).
- Varðveisla
- Stökum atburðum er eytt eftir 400 daga. Eftir standa samanlagðar tölur sem segja ekkert um einstaklinga. Hýsingaraðili okkar geymir kerfisannála, með IP-tölu, í allt að 30 daga vegna rekstrar og öryggis.
Leitin
- Hvað
- Textinn sem þú slærð inn í gervigreindarleitina („Galdraleit“), t.d. „ódýrir hlaupaskór“. Venjuleg leit í verslunum og vörum fer ekki út fyrir okkar kerfi.
- Hvernig
- Textinn er sendur til OpenAI sem breytir honum í leitarskilyrði og raðar svo vörunum sem við finnum; þá fara líka vöruheiti og verð til OpenAI. Við sendum hvorki IP-tölu né aðgangsupplýsingar með. Túlkun hverrar leitar (leitarorðin, ekki hver leitaði) geymum við í skyndiminni svo sama leit þurfi ekki aftur til OpenAI.
- Athugaðu
- Ekki slá inn persónuupplýsingar, t.d. nafn eða kennitölu, í leitina.
- Grundvöllur
- Lögmætir hagsmunir: að veita leitina sem þú baðst um (f-liður).
- Varðveisla
- Túlkunum í skyndiminni eyðum við eftir 90 daga. OpenAI geymir gögn sem berast í gegnum forritaskil þess í allt að 30 daga til að fylgjast með misnotkun og notar þau ekki til að þjálfa líkön sín.
Aðgangur og vaktir (ef þú skráir þig inn)
- Hvað
- Netfangið þitt og hvaða verslanir og vörutegundir þú vaktar. Netfangið er nauðsynlegt til að stofna aðgang og senda vaktpóst; án þess er sú þjónusta ekki í boði. Við sendum þér sex stafa innskráningarkóða sem gildir í 10 mínútur; lykilorð eru engin. Fyrir hverja innskráningu geymum við upplýsingar um vafrann (user-agent) í öryggisskyni, en ekki IP-tölu. Við skráum líka hvaða tilkynningar við höfum sent, svo þú fáir sama póstinn ekki tvisvar.
- Tilgangur
- Að þú getir vaktað verslanir og vörutegundir og fengið póst þegar útsala hefst.
- Grundvöllur
- Samningur: þjónustan sem þú baðst um (b-liður).
- Varðveisla
- Aðgangurinn er geymdur þar til þú biður okkur um að eyða honum. Innskráning gildir í sjö daga og endurnýjast þegar þú notar vefinn. Henni er eytt þegar þú skráir þig út, eða í daglegri hreinsun eftir að hún rennur út.
Tölvupóstur um útsölur
- Hvað
- Þegar þú kveikir á vakt sendum við þér póst þegar verslunin fer á útsölu. Fyrir vöruvakt velurðu hvort þú færð póst þegar nýjar vörur bætast við eða einn samantektarpóst á dag. Við sendum engan annan markpóst.
- Grundvöllur
- Samþykki þitt (a-liður), sem þú gefur þegar þú kveikir á vakt. Afturköllun hefur ekki áhrif á lögmæti vinnslu fram að henni.
- Afskráning
- Hlekkur neðst í hverjum pósti slekkur á vaktinni með einum smelli. Á síðunni Mínar vaktir geturðu slökkt á þeim öllum.
Ábendingar og tilkynningar
- Hvað
- Það sem þú skrifar í formið, t.d. vefslóð verslunar eða athugasemd, og netfang ef þú vilt vita þegar verslunin bætist við. Allt nema vefslóðin er valkvætt. Ábendingin berst okkur líka í tölvupósti. Til að verjast ruslsendingum geymum við tætigildi af IP-tölu sendanda.
- Grundvöllur
- Lögmætir hagsmunir: að halda skránni réttri og verja hana gegn misnotkun (f-liður). Netfangið: samþykki þitt (a-liður).
- Varðveisla
- Tætigildi IP-tölunnar eyðum við í daglegri hreinsun þegar 30 dagar eru liðnir, og netfanginu í gagnagrunninum þegar sex mánuðir eru liðnir. Ábendingin sjálf er geymd meðan hún nýtist við að halda skránni réttri; skrifaðu því ekki persónuupplýsingar í athugasemdina. Tölvupóstinn geymum við eins og önnur samskipti (sjá næsta lið).
Verslanir og auglýsendur
- Hvað
- Nafn, netfang og sími þess sem sendir okkur fyrirspurn um auglýsingu, tölvupóstsamskipti og reikningsupplýsingar (fyrirtæki, kennitala og netfang fyrir reikninga). Þegar verslun skráir útsölu hjá okkur geymum við nafn og netfang þess sem skráir og eyðum þeim sex mánuðum eftir að útsölunni lýkur. Kynningarpóst sendum við aðeins á almenn netföng fyrirtækja sem þau birta sjálf, t.d. info@, en á netföng einstaklinga aðeins með samþykki eða annarri viðeigandi heimild.
- Grundvöllur
- Samningur eða undirbúningur hans að þinni beiðni (b-liður). Lögmætir hagsmunir af því að kynna þjónustuna fyrir verslunum (f-liður). Lagaskylda um bókhald (c-liður).
- Varðveisla
- Bókhaldsgögn í sjö ár samkvæmt lögum nr. 145/1994 um bókhald. Önnur samskipti, þar á meðal fyrirspurnir og ábendingar sem berast í tölvupósti, geymum við meðan þeirra er þörf og eyðum þeim svo. Verslun sem vill ekki fá póst frá okkur, eða ekki vera á vefnum, lætur vita á utsolur@utsolur.is og við virðum það.
Upplýsingar sem við birtum um verslanir, t.d. vöruheiti, verð og myndir, sækjum við af opnum vefjum verslananna. Þær snúast um verslanirnar, ekki einstaklinga. Við tökum engar sjálfvirkar ákvarðanir sem hafa réttaráhrif á þig.
3. Vafrakökur og geymsla í vafranum
Við notum engar vafrakökur til greiningar, auglýsinga eða rakningar, og engin rakningartól frá öðrum, t.d. Google Analytics eða Meta Pixel. Leturgerðirnar eru hýstar hjá okkur sjálfum, svo vafrinn þinn sækir þær ekki til Google. Það eina sem vefurinn geymir í vafranum er þetta, og það er nauðsynlegt til að vefurinn virki:
| Heiti | Til hvers | Hve lengi |
|---|---|---|
| __Secure-better-auth.session_token | Vafrakaka sem heldur innskráningu þinni virkri. Hún er aðeins sett ef þú skráir þig inn. | 7 dagar frá innskráningu eða síðustu endurnýjun; eytt við útskráningu |
| utsolur:chunk-reloads, utsolur:dismissed-build | Tvær smáfærslur í sessionStorage sem halda utan um nýjar útgáfur vefsins, svo síðan endurhlaðist ekki í sífellu. | Hverfa þegar flipanum er lokað |
| utsolur:nolog | Aðeins í vöfrum okkar sjálfra (stjórnenda): segir talningunni að telja ekki okkar eigin heimsóknir. | Þar til henni er eytt |
4. Hverjir vinna með gögnin
Við seljum hvorki né leigjum persónuupplýsingar. Þessi fyrirtæki vinna með gögn fyrir okkur sem vinnsluaðilar, hvert aðeins að því marki sem þarf:
- Vercel hýsir vefinn. Hann keyrir í gagnaveri á Írlandi.
- Supabase hýsir gagnagrunninn, hjá Amazon Web Services á Írlandi.
- Resend sendir tölvupóstinn: innskráningarkóða og vaktir.
- OpenAI túlkar leitartextann (sjá hér að ofan).
- Google Workspace hýsir pósthólfið utsolur@utsolur.is, þar sem fyrirspurnir og svör berast.
- Payday heldur utan um reikninga til auglýsenda.
Við afhendum öðrum persónuupplýsingar aðeins ef lög krefjast þess.
5. Flutningur út fyrir EES
Vercel, Resend, OpenAI og Google eru bandarísk fyrirtæki, og Supabase gæti þurft aðgang að gagnagrunninum frá Bandaríkjunum, t.d. vegna þjónustu. Gögn geta því farið til Bandaríkjanna. Flutningurinn byggir á ákvörðun framkvæmdastjórnar ESB um fullnægjandi vernd (EU–US Data Privacy Framework) þar sem viðtakandinn er vottaður samkvæmt henni, og annars á stöðluðum samningsskilmálum ESB. Afrit af þeim færðu ef þú sendir okkur póst.
6. Réttindi þín
Þú átt rétt á að vita hvaða upplýsingar við höfum um þig og fá afrit af þeim. Þú getur látið leiðrétta þær eða eyða þeim, takmarkað vinnslu eða andmælt henni og fengið gögnin þín afhent á tölvutæku formi. Samþykki geturðu dregið til baka hvenær sem er; það hefur ekki áhrif á lögmæti vinnslu fram að því.
Sendu beiðni á utsolur@utsolur.is, helst frá netfanginu sem málið varðar. Ef þú vilt að aðganginum þínum sé eytt eyðum við honum ásamt vöktum og innskráningum. Við svörum innan mánaðar.
Ef þú telur að við förum ekki rétt með upplýsingar um þig geturðu kvartað til Persónuverndar.
7. Öryggi
Öll samskipti við vefinn eru dulkóðuð (HTTPS) og aðgangur að gagnagrunninum er takmarkaður við rekstraraðilann. Við geymum eins lítið og við komumst af með. Lykilorð eru engin, IP-tölur geymum við ekki, aðeins tímabundin tætigildi af þeim, og gestir eru taldir án þess að nokkuð sé geymt í tækjum þeirra.
8. Breytingar
Ef við breytum stefnunni uppfærum við dagsetninguna efst á síðunni. Ef breytingin skiptir máli fyrir skráða notendur látum við þá vita í tölvupósti. Sjá líka notkunarskilmála.